Liverpool mætir Aston Villa á útivelli í enska deildabikarnum þriðjudaginn 17. desember en daginn eftir spilar liðið í undanúrslitum HM félagsliða í Katar.
Hörðustu stuðningsmenn Liverpool í Englandi missa ekki af leik með liðinu og þrátt fyrir að leikirnir séu í sitthvorri heimsálfunni með innan við sólarhrings milibili þá geta stuðningsmenn náð báðum leikjunum.

Stuðningsmenn Liverpool sem fara á leikinn gegn Aston Villa í BIrmingham 17. desember geta tekið flug frá Birmingham daginn eftir klukkan 7:50. Það flug lendir 17:30 í staðartíma í Doha í Katar en þá eru þrír tímar í leik.
Um hálftíma leið er frá flugvellinum í Doha á Education City leikvanginn og því ætti þetta ferðalag að ganga upp fyrir hörðustu stuðningsmenn Liverpool.
Einnig er hægt að taka morgunflug frá London 18. desember en sú vél lendir í Doha 17:45.
Athugasemdir