Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal, hefur hrósað miðjumanninum Mohamed Elneny sem fær nú spilatíma á Emirates.
Elneny var lánaður til Besiktas í Tyrklandi á síðustu leiktíð en félagið neitaði að kaupa hann endanlega eftir tímabilið.
Egyptinn fékk því óvænt tækifæri á þessu tímabili undir Mikel Arteta og var frábær í 0-1 útisigri á Manchester United.
Aubameyang er líklega mikilvægasti leikmaður enska liðsins og hefur verið mjög hrifinn af miðjumanninum til þessa.
„Frammistaða Mo á miðjunni gegn Manchester United var stórkostleg," sagði Aubameyang við heimasíðu Arsenal.
„Ég held að lánið hafi gert honum gott - að komast út og öðlast smá reynslu. Hann kom til baka með þessa reynslu og það er mikilvægt."
„Hvernig hann hefur spilað síðan hann kom til baka, það hefur í raun verið ótrúlegt."
Athugasemdir