Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. nóvember 2020 19:10
Victor Pálsson
Byrjunarlið Southampton og Newcastle: Enginn Ings
Mynd: Getty Images
Það er áhugaverður leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Southampton tekur á móti Newcastle á St. Mary's vellinum en að venju þessa dagana er leikið fyrir luktum dyrum.

Danny Ings er helsta vopn Southampton í sókninni en hann er fjarri góðu gamni í kvöld og spilar ekki vegna meiðsla.

Að sama skapi er markvörðurinn Martin Dubravka ekki með Newcastle vegna meiðsla sem og miðjumaðurinn Jonjo Shelvey.

Southampton hefur byrjað leiktíðina mjög vel og er með 13 stig eftir fyrstu sjö leikina. Newcastle er tveimur sætum neðar með 11 stig í 11. sæti.

Hér má nálgast byrjunarlið kvöldsins.

Southampton: Walker-Peters, Vestergaard, Stephens, Bednarek, Romeu, Ward-Prowse, Armstrong, Djenepo, Walcott, Adams

Newcastle: Darlow, Lewis, Schar, Lascelles, Fernandez, S. Longstaff, Hendrick, Almiron, Murphy, Saint-Maximin, Wilson

Athugasemdir
banner
banner
banner