Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. nóvember 2020 22:10
Victor Pálsson
Hasenhuttl: Svolítið ógnvekjandi það sem við erum að afreka
Félagar á toppnum.
Félagar á toppnum.
Mynd: Getty Images
Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton, gat brosað í kvöld eftir 2-0 sigur hans manna gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.

Southampton hefur byrjað tímabilið gríðarlega vel og er óvænt á toppi deildarinnar með 16 stig líkt og Liverpool.

Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Southampton situr á toppi efstu deildar.

„Það er ótrúlegt hvað liðið mitt er að gera þessa stundina. Ég óska öllum til hamingju," sagði Hasenhuttl.

„Þetta er ótrúlegur hópur. Það er svolítið ógnvekjandi það sem við erum að afreka þessa stundina en það kemur ekki á óvart."

„Þegar ég sé vinnuframlagið og það sem við vinnum í, á endanum færðu að sjá það á vellinum."

Athugasemdir
banner
banner