Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 06. nóvember 2020 19:00
Victor Pálsson
Hvetur Man Utd til að reyna við Rodgers
Mynd: Getty Images
Alan Brazil, útvarpsmaður hjá TalkSport, vill sjá Brendan Rodgers fá stjórastarfið hjá Manchester United.

Alan Brazil, útvarpsmaður hjá TalkSport, vill sjá Brendan Rodgers fá stjórastarfið hjá Manchester United.

Rodgers er fyrrum stjóri bæði Liverpool og Celtic en er í dag hjá Leicester City og hefur gert nokkuð góða hluti.

Ole Gunnar Solskjær er talinn vera nokkuð valtur í sessi á Old Trafford eftir erfitt gengi í byrjun tímabils.

Brazil telur að Man Utd þurfi ekki að horfa lengra en til Leicester og væri til í að Norður-Írinn fengi tækifærið.

„Ég myndi láta Brendan fá starfið. Ef Ole þarf að fara þá myndi ég ekki horfa lengra en til Rodgers," sagði Brazil.

„Hann hefur gert frábæra hluti hjá Leicester. Já hann fékk peningana en mér er sama, sjáiði töfluna. Hann er stjóri í toppklassa."

Athugasemdir
banner
banner