.,Að spila gegn Manchester City er erfiðasti leikurinn í heimsfótboltaum og við þurfum að undirbúa okkur fyrir það," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.
Liverpool heimsækir Manchester City á sunnudag en þessi lið hafa barist um titilinn undanfarin tímabil.
Liverpool heimsækir Manchester City á sunnudag en þessi lið hafa barist um titilinn undanfarin tímabil.
„Við erum snemma á tímabilinu og þetta er öðruvísi ár svo það er ekki hægt að bera þetta saman við árin á undan."
„Við þurfum að passa upp á að við komumst í gegnum erfiða kafla og spilum besta fótbolta sem við getum. Þetta er gegn Man City sem er eitt besta lið í heimi. Ég nýt þess að takast á við svona leiki og þetta verður erfitt verkefni."
Klopp segir að miðjumaðurinn Thiago Alcantara nái ekki leiknum á sunnudag en hann hefur verið að glíma við meiðsli. Thiago ætti að verða klár í slaginn á ný eftir landsleikjahlé.
Athugasemdir