Chris Sutton, fyrrum landsliðsmaður Skotlands, lét í sér heyra á BT Sport eftir leik Celtic og Sparta Prag í Evrópudeildinni í gær.
Celtic stóðst alls ekki væntingar á heimavelli í gær og tapaði 4-1 gegn Tékkunum í riðlakeppninni.
Mohamed Elyounoussi spilaði með Celtic í leiknum en fór af velli í stað Leight Griffiths í seinni hálfleik.
Myndavélar vallarins tóku upp vængmanninn í stúkunni þar sem mátti sjá hann í símanum á meðan leikurinn var enn í gangi.
Sutton er harður stuðningsmaður Celtic og vill hann sjá félagið refsa leikmanninum eftir þessa hegðun.
„Það sem ég set spurningamerki er skuldbinding leikmannana," sagði Sutton við BT Sport.
„Það er leikmaður þarna sem situr í stúkunni og er í símanum. Það er algjörlega óásættanlegt."
„Þetta er til skammar. Er hann hluti af liðinu eða þessu verkefni? Ég myndi sekta hann tvær vikur í laun fyrir þetta."
Elyounoussi on his Bet365 sticking a score on Sparta for the next goal 😂 pic.twitter.com/cheO0kDhKh
— Will Robbo (@wullieboy78) November 5, 2020
Athugasemdir