Elche 1 - 1 Celta Vigo
1-0 Fidel Fidel('4, víti)
1-1 Santi Mina('41)
1-0 Fidel Fidel('4, víti)
1-1 Santi Mina('41)
Það var einn leikur á dagskrá í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikið ver á Estadio Martinez vellinum í Elche.
Heimamenn í Elche tóku þar á móti Celta Vigo en það síðarnefnda hefur byrjað mjög illa og var með sex stig eftir fyrstu átta leikina.
Elche byrjaði leikinn vel á heimavelli og skoraði fyrsta markið á fjórðu mínútu er Fidel Fidel skoraði af vítapunktinum.
Staðan var 1-0 þar til á 41. mínútu er Santi Mina tókst að jafna fyrir Celta og staðan jöfn í leikhléi.
Fleiri mörk voru þó ekki skoruð í seinni hálfleik og jafntefl niðurstaðan. Elche situr í níunda sæti með 11 stig og er Celta í því 17. með sjö.
Athugasemdir