Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. nóvember 2020 22:55
Victor Pálsson
Thiago ekki með Liverpool
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Liverpool verða án lykilmanns á sunnudag þegar liðið mætir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

Stórleikur helgarinnar hefst klukkan 16:30 á Etihad vellinum og má búast við mjög skemmtilegum leik eins og yfirleitt þegar þessi tvö mætast.

Miðjumaðurinn Thiago Alcantara mun ekki leika með Liverpool í leiknum en það hefur Jurgen Klopp, stjóri liðsins, staðfest.

Thiago er enn að glíma við hnémeisli en hann meiddist í leik gegn Everton eftir tæklingu frá framherjanum Richarlison.

Spænski landsliðsmaðurinn hefur misst af síðustu fimm leikjum vegna þess og verður ekki í hópnum á Etihad.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner