Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. nóvember 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Þórir ekki áfram með Dalvík/Reyni
Mynd: Dalvík/Reynir
Þórir Guðmundur Áskelsson, sem tók við liði Dalvíkur/Reynis undir lok tímabilsins, verður ekki áfram þjálfari liðsins.

Dalvík/Reynir féll niður í 3. deild á dögunum. Þórir stýrði liðinu undir lok móts en hann tók við af Óskari Bragasyni.

„Þórir kom inn með kraft, gleði og aga inn í okkar starf á erfiðum tímapunkti undir lok tímabilsins. Því miður náði hann ekki að stýra liðinu upp í öruggt sæti. Nú er það hinsvegar ljóst að Þórir mun ekki gefa færi á sér í áframhaldandi starf fyrir félagið og kunnum við honum bestu þakkir fyrir hans framlag í sumar,“ segir Stefán Garðar Níelsson, formaður stjórnar knattspyrnudeildar á heimasíðu Dalvíkur.

Þjálfaraleit stendur nú yfir og hafa nokkur nöfn verið orðuð við starfið, að því er fram kemur á heimasíðu Dalvíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner