Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 06. nóvember 2020 18:00
Magnús Már Einarsson
Tíu leikmenn PSG festust í lyftu í 50 mínútur
Mynd: Getty Images
Tíu leikmenn PSG lentu í vandræðum daginn fyrir leikinn gegn RB Leipzig í Meistaradeildinni í vikunni.

Leikmennirnir festust í lyftu á hóteli liðsins í Þýskalandi og voru fastir í 50 mínútur. Á endanum komu slökkviliðsmenn og björguðu leikmönnunum.

Á meðal leikmannanna sem festust voru Angel Di Maria, Marquinhos, Moise Kean, Presnel Kimpembe, Leandro Paredes og Layvin Kurzawa.

Kurzawa birti myndband af atvikinu á Instagram en eyddi því síðan að óska forráðamanna PSG.

PSG tapaði 2-1 gegn Leipzig og er nú í þriðja sæti riðilsins í Meistaradeildinni með þrjú stig eftir þrjá leiki. Frönsku meistararnir þurfa því að gefa í til að komast áfram í 16-liða úrslitin.
Athugasemdir
banner
banner