sun 06. nóvember 2022 11:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ferdinand sakar Ramsdale um lygar - „Pottþétt talað um Aubameyang"
Mynd: EPA

Leikur Chelsea og Arsenal er við það að hefjast á Stamford Bridge. Pierre-Emerick Aubameyang er í byrjunarliði Chelsea gegn sínum gömlu félögum.


Hann var frábær í búningi Arsenal en hann lenti í riflildi við Mikel Arteta og yfirgaf félagið og gekk til Barcelona. Hann gekk til liðs við Chelsea síðan í sumar.

Aaron Ramsdale markvörður Arsenal segir að Arteta hafi ekki minnst á Aubameyang við leikmenn liðsins í aðdraganda leiksins.

„Við vitum með hverjum hann spilar og hvað gerðist, í 90-95 mínútur á hann enga vini. Eftir það munum við taka í höndina á honum og sjá hvernig hann hafi það en núna er hann í Chelsea og við spilum með Arsenal," sagði Ramsdale.

Rio Ferdinand fyrrum varnarmaður Manchester United telur að Ramsdale sé ekki að segja rétt frá.

„Hann lýgur, það var pottþétt talað um Aubameyang í klefanum fyrir leikinn," sagði Ferdinand.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner