Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 06. nóvember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tinna Harðardóttir framlengir í Árbænum
Mynd: Fylkir Facebook

Tinn Harðardóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Fylki.


Hún er 19 ára sóknarmaður uppalin í Breiðablik en hún gekk til liðs við Fylki í sumar og lék 12 leiki í Lengjudeildinni og skoraði eitt mark.

Hún hefur leikið 9 landsleiki fyrir u16 og u17 landslið Íslands.

„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu." Segir í tilkynningu frá félaginu en liðið hafnaði í 6. sæti deildarinnar í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner