Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. desember 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Guendouzi um hártogið: Öfundsýki hjá Fellaini
Matteo Guendouzi er með gott hár.
Matteo Guendouzi er með gott hár.
Mynd: Getty Images
Matteo Guendouzi, miðjumaður Arsenal, hefur skotið á Marouane Fellaini miðjumann Manchester United eftir atvik sem átti sér stað í leik liðanna í gær.

Fellaini stöðvaði þá Guendouzi með því að toga í hárið á honum. Belginn slapp hins vegar með spjald á einhvern ótrúlegan hátt.

Fellaini hefur í áraraðir verið þekktur fyrir hárgreiðslu sína en hann rakaði hárið af á dögunum.

„Ég held að það sé smá öfundsýki þarna. Kannski getur hann ekki sætt sig við þá staðreynd að hann ákvað að fara aftur í stutt hár," sagði Guendouzi léttur í bragði í dag aðspurður út í atvikið.

Smelltu hér til að sjá atvikið í leiknum í gær
Athugasemdir
banner
banner
banner