HK tekur á móti Stjörnunni í Kórnum í úrslitaleik um þriðja sæti Bose-mótsins í kvöld.
Leikurinn fer fram í Kórnum og verður áhugaverður þar sem bæði lið unnu einn og töpuðu einum í riðlakeppninni.
HK lagði FH að velli 2-1 en tapaði svo með þriggja marka mun gegn nágrönnum sínum í Breiðablik. Stjarnan rúllaði yfir Víking R. 5-0 í fyrstu umferð en réði svo ekki við KR.
KR og Blikar mætast í úrslitaleik mótsins í Fífunni næsta laugardag.
Leikur kvöldsins:
20:10 HK - Stjarnan (Kórinn)
Athugasemdir