Í dag var dregið í riðla fyrir undankeppni EM 2020 hjá bæði U17 og U19 ára landsliðum karla.
Í U19 er Ísland í riðli með Belgíu, Grikklandi og Albaníu.
Riðillinn verður leikinn í Belgíu dagana 13.-19. nóvember 2019.
Hjá U17 er Ísland í riðli með Skotlandi, Króatíu og Armeníu.
Riðillinn fer fram dagana 22.-28. október 2019 og verður hann leikinn í Skotlandi.
Athugasemdir