Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. janúar 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Skráning hafin á Njarðvíkurmótið - Haldið síðustu tuttugu ár
Mynd: shellmot.is
Mynd: Aðsend
Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur undanfarin tuttugu ár staðið fyrir mótum í Reykjaneshöll í yngri flokkum í janúar og febrúar.

Mót þessi hafa verið vel sótt og er lögð er rík áhersla á að mótahald gangi vel fyrir sig og allt sé á tíma.

Njarðvíkurmótin eru fyrir 5. flokk og niður í 8. flokk, fyrir bæði drengi og stúlkur.

Það er enn pláss fyrir félög að skrá sig á mótin. Hægt er að skrá lið með því að senda tölvupóst á [email protected].

Þátttökugjald er 3000 krónur á keppanda og er Þórir Rafn Hauksson mótstjóri.

Leikdagarnir eru eftirfarandi:
11. janúar - 5. flokkur stúlkna

18. janúar - 5. flokkur drengja

25. janúar - 6. flokkur drengja

1. febrúar - 6. og 7. flokkur stúlkna

8. febrúar - 7. flokkur drengja

16. febrúar - 8. flokkur drengja og stúlkna
Athugasemdir
banner