CIES Football Observatory birti í gær lista yfir verðmætustu fótboltamenn heims.
Þessi listi er tekinn saman ár hvert og er Marcus Rashford hjá Manchester United á toppnum þetta árið.
Það sem skiptir máli þegar listinn er tekinn saman er meðal annars geta leikmanna, frammistaða, aldur, lengd á samningi auk það hversu ríkt núverandi félag leikmannsins er og hversu góðum árangri það hefur verið að ná.
Hér má sjá hvernig úrvalslið verðmætustu leikmanna heims er sett saman, í leikkerfinu 4-3-3.

Markvörður: Ederson (Man City) - Efstur markvarða á listanum, metinn á tæplega 80 milljónir punda. Marc-André ter Stegen og Alisson koma rétt á eftir honum.
Vinstri bakvörður: Alphonso Davies (Bayern München) - Hjálpaði þýska liðinu að hampa Evrópumeistaratitlinum.
Miðjumaður: Bruno Fernandes (Man Utd) - Hefur komið United upp í baráttuna um Englandsmeistaratitilinn.
Miðjumaður: Kai Havertz (Chelsea) - Hefur enn ekki náð flugi í enska boltanum en er talinn einn besti ungi miðjumaður heims.
Athugasemdir