Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 07. janúar 2023 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti: Bellingham er frábær miðjumaður
Mynd: EPA

Jude Bellingham miðjumaður Dortmund og enska landsliðsins er gríðarlega efnilegur leikmaður. Mörg af stærstu liðum heims hafa verið orðuð við leikmanninn undanfarin ár.


Mest er talað um Real Madrid og Liverpool en Carlo Ancelotti stjóri Madrid er hrifinn af honum en er sáttur með sína miðjumenn.

„Bellingham er frábær miðjumaður en ég kýs mína frekar. Við erum með mjög góða miðjumenn, meðal annars stórkostlega unga leikmenn eins og Camavinga, Tchouameni og Valverde," sagði Ancelotti.

Ancelotti hefur áður sagt að hann ætli ekki að fara í stórinnkaup í janúarglugganum.


Athugasemdir
banner
banner
banner