lau 07. janúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kjarnafæðimótið: KF vann fyrsta leik ársins
Úr leik Magna og KF í sumar
Úr leik Magna og KF í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni 0 - 1 KF
0-1 Guðbjörn Smári Birgisson ('85 )


Boltinn er byrjaður að rúlla aftur á nýju ári á Íslandi en Magni og KF mættust í Kjarnafæðimótinu í Boganum á Akureyri í gær.

Þetta var fyrsti leikur Magna á mótinu en KF tapaði gegn Þór 5-2 rétt fyrir jól.

KF steig upp í gær og vann með einu marki gegn engu þar sem Guðbjörn Smári Birgisson skoraði eina markið.

Tveir leikir eru á Kjarnafæði mótinu í dag en kl 17 mætast Dalvík/Reynir og Tindastóll og í kjölfarið kl 19 mætast Hamrarnir og Samherjar.

Allir leikir mótsins fara fram í Boganum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner