lau 07. janúar 2023 16:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Potter: Pep, Arteta og Klopp fengu tíma
Mynd: EPA

Graham Potter stjóri Chelsea er undir mikilli pressu en það hefur alls ekki gengið vel að undanförnu.


Hann segist ekki vera hræddur um að vera rekinn. Hann bendir á að stórir stjórar hafi fengið tíma til að byggja upp sín lið.

„Eigendurnir eru milljarðamæringar svo þeir eru nokkuð gáfaðir. Gáfaðari en ég það er ljóst. Svo þeir skilja áskorunina og áttina sem við viljum fara í. Ég hef verið hérna í fjóra mánuði og 5-6 vikur af því fór í landsleikjahlé," sagði Potter.

„Ég held að Pep (Guardiola) hafi verið í ár (hjá City) áður en hann vann eitthvað og augljóslega Mikel Arteta og Jurgen Klopp tóku smá tíma. Kannski er þetta öðruvísi fyrir mig af einhverjum ástæðum."


Athugasemdir
banner
banner
banner