Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 07. janúar 2023 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Bailly rekinn útaf fyrir karatespark á 15. mínútu
Mynd: EPA

Eric Bailly, varnarmaður Manchester United á láni hjá Marseille, fékk beint rautt spjald fyrir stórhættulegt karatespark í bikarleik gegn 4. deildarliði Hyeres FC.


Bailly fékk rauða spjaldið eftir aðeins fimmtán mínútna leik en tíu leikmönnum Marseille tókst að bera sigur úr býtum.

Bailly er á láni hjá Marseille með kaupmöguleika sem verður að kaupskyldu verði ákveðnum skilyrðum mætt. 

Hinn 28 ára gamli Bailly hefur spilað 11 leiki með Marseille á tímabilinu, sex í deild og fimm í Meistaradeild.


Athugasemdir
banner
banner
banner