Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 07. febrúar 2020 09:07
Magnús Már Einarsson
Pogba og McTominay ekki með Man Utd til Marbella
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba og Scott McTominay fara ekki með Manchester United í æfingaferð til Marbella á Spáni á morgun.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, ætlar að nýta vetrarfríið í ensku úrvalsdeildinni og æfa á Spáni næstu dagana.

Pogba og McTominay eru báðir á meiðslalistanum og þeir verða eftir í Manchester til að vinna í meiðslum sínum.

Odion Ighalo og Bruno Fernandes fara báðir með til Spánar en þeir komu til Manchester United á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner