banner
   fös 07. febrúar 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn um helgina - Setien mætir fyrrum félagi sínu
Quique Setien, þjálfari Barcelona, snýr aftur á kunnar slóðir.
Quique Setien, þjálfari Barcelona, snýr aftur á kunnar slóðir.
Mynd: Getty Images
Það verður stuð í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni, um helgina. Í kvöld mætast Alaves og Eibar.

Fjórir leikir eru á morgun, en segja má að aðalstuðið verði á sunnudaginn. Allir leikir sunnudagsins verða sýndir í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2.

Espanyol og Mallorca mætast í fyrsta leik sunnudagsins klukkan 11:00, og klukkan 13:00 munu Real Sociedad og Athletic Bilbao eigast við í áhugaverðri viðureign.

Þá heimsækir Real Madrid lið Osasuna og klukkan 17:30 mun Celta Vigo, sem er í fallsæti, mæta Sevilla.

Í lokaleik sunnudagsins munu Real Betis og Barcelona etja kappi. Quique Setien, þjálfari Barcelona, stýrði áður Real Betis.

Fyrir leiki helgarinnar er Real Madrid þremur stigum á undan Barcelona á toppi deildarinnar.

föstudagur 7. febrúar
20:00 Alaves - Eibar

laugardagur 8. febrúar
12:00 Levante - Leganes
15:00 Getafe - Valencia (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Valladolid - Villarreal
20:00 Atletico Madrid - Granada CF (Stöð 2 Sport 2)

sunnudagur 9. febrúar
11:00 Espanyol - Mallorca (Stöð 2 Sport)
13:00 Real Sociedad - Athletic (Stöð 2 Sport 4)
15:00 Osasuna - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Celta - Sevilla (Stöð 2 Sport 2)
20:00 Betis - Barcelona (Stöð 2 Sport 3)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 29 22 6 1 64 20 +44 72
2 Barcelona 29 19 7 3 60 34 +26 64
3 Girona 29 19 5 5 59 34 +25 62
4 Athletic 29 16 8 5 50 26 +24 56
5 Atletico Madrid 29 17 4 8 54 34 +20 55
6 Real Sociedad 29 12 10 7 42 31 +11 46
7 Betis 29 10 12 7 34 33 +1 42
8 Valencia 28 11 7 10 32 32 0 40
9 Getafe 29 9 11 9 37 42 -5 38
10 Villarreal 29 10 8 11 47 51 -4 38
11 Las Palmas 29 10 7 12 29 32 -3 37
12 Osasuna 29 10 6 13 33 43 -10 36
13 Alaves 29 8 8 13 26 35 -9 32
14 Mallorca 29 6 12 11 25 35 -10 30
15 Vallecano 29 6 11 12 25 38 -13 29
16 Sevilla 29 6 10 13 36 44 -8 28
17 Celta 29 6 9 14 32 44 -12 27
18 Cadiz 29 3 13 13 20 40 -20 22
19 Granada CF 28 2 8 18 30 58 -28 14
20 Almeria 29 1 10 18 28 57 -29 13
Athugasemdir
banner
banner
banner