Sverrir Ingi Ingason reyndist hetja PAOK í dag sem spilaði v8ið Smyrnis í grísku úrvalsdeildinni.
Sverrir er mikilvægur hluti af sterku liði PAOK sem situr í öðru sæti deildarinnar eftir 21 leik.
Titillinn mun enda hjá Olympiakos sem er með 14 stiga forskot og leik til góða í góðri stöðu á toppnum.
Ekki hjálpaði jafntefli liði PAOK í dag sem spilaði við Smyrnis heima og lauk leiknum í stöðunni 2-2.
Sverrir spilaði allan leikinn og skoraði seinna mark PAOK sem tryggði stig þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Athugasemdir