Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. febrúar 2021 12:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjartan Henry skoraði tvö í fyrsta leik með Esbjerg
Mynd: Esbjerg
Esbjerg mætti Aarhus Fremad í æfingaleik í Danmörku í dag. Leikurinn var hluti af undirbúningi liðsins fyrir dönsku B-deildina sem fer aftur af stað um næstu helgi.

Esbjerg er í 2. sæti B-deildarinnar með jafnmörg stig og topplið Viborg.

Kjartan Henry Finnbogason gekk í raðir Esbjerg frá Horsens um síðustu helgi og lék sinn fyrsta leik með félaginu í dag.

Kjartan skoraði fyrr mark leiksins á 60. mínútu og bætti svo við öðru marki sínu á 62. mínútu. Lokatölur urðu 2-0.

Kjartan fór af velli á 75. mínútu fyrir Andra Rúnar Bjarnason. Ólafur Helgi Kristjánsson er þjálfari liðsins.

Esbjerg mætir Vendsyssel þann 13. febrúar.


Athugasemdir
banner
banner