Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 07. mars 2018 23:05
Hrafnkell Már Gunnarsson
Einkunnir Man City og Basel: Sane bestur í tapi
Sane maður leiksins í kvöld.
Sane maður leiksins í kvöld.
Mynd: Getty Images
Leroy Sane var valinn maður leiksins af Sky Sports þegar Manchester City tapaði óvænt gegn Basel 1-2 í Meistaradeildinni í kvöld.

Manchester City vann fyrri leik liðanna í Sviss sannfærandi 4-0 og voru litlar líkur að Basel myndi komast áfram í kvöld. Þrátt fyrir að hafa tapað leiknum var Leroy Sane nefndur maður leiksins. 

Manchester City eru nú komnir í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar og verður gaman hversu langt þetta frábæra lið fer í keppninni.

Einkunnir Man City: Bravo (6), Danilo (7), Stones (6), Laporte (6), Zinchenko (6), Gundogan (7), Yaya Toure (6), B Silva (7), Foden (6), Sane (8), Jesus (7). Varamenn: Diaz (6), Adarabioyo (n/a).

Einkunnir Basel: Vaclik (7), Lacroix (7), Frei (6), Suchy (6), Riveros (7), Zuffi (6), Serey Die (7), Lang (7), Elyounoussi (7), Bua (7), Oberlin (6). Varamenn: Stocker (5), Van Wolfswinkel (5).

Maður leiksins: Leroy Sane.
Athugasemdir
banner
banner
banner