Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. mars 2018 15:25
Elvar Geir Magnússon
Mane: Getum unnið öll lið heims
Mane hlakkar til að mæta Man Utd.
Mane hlakkar til að mæta Man Utd.
Mynd: Getty Images
Sadio Mane segir að Liverpool geti unnið hvaða lið sem er í heiminum. Skýr skilaboð fyrir stórleik Liverpool gegn Manchester United á Old Trafford á laugardaginn.

Jurgen Klopp og lærisveinar eru aðeins tveimur stigum á eftir Manchester United í baráttunni um annað sætið í deildinni.

Liverpool er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir markalausan leik gegn Porto í gær en Liverpool vann fyrri leikinn 5-0 þar sem Mane skoraði þrennu.

„Þetta verður ekki auðvelt en við getum unnið hvaða lið sem er í heiminum. Manchester United er eitt besta lið Englands, og auðvitað eitt það besta í heimi, en það erum við líka," segir Mane.

„Það er draumur allra leikmanna að taka þátt í svona leik svo tilhlökkunin er mikil."

Leikur Manchester United og Liverpool á laugardag verður klukkan 12:30.
Athugasemdir
banner
banner