Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 07. mars 2018 16:30
Elvar Geir Magnússon
Winston Reid ekki meira með á tímabilinu
Reid meiddist illa.
Reid meiddist illa.
Mynd: Getty Images
Winston Reid, varnarmaður West Ham, verður ekki meira með á tímabilinu vegna meiðsla. Þessi 29 ára leikmaður fór af velli á börum og með súrefnisgrímu yfir andlitinu eftir að hafa rotast og snúið upp á hné í tapinu gegn Swansea síðasta laugardag.

Swansea vann leikinn 4-1 en Sam Byram gæti einnig misst af þeim leikjum sem eftir eru á tímabilinu eftir að hafa meiðst á ökkla í sama leik.

David Moyes og lærisveinar eru í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Varnarmennirnir Angelo Ogbonna og James Collins misstu af leiknum gegn Swansea vegna meiðsla en ættu að vera klárir í næsta leik sem er gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner