Nú er í gangi leikur Liverpool og Bournemouth og er staðan 1-0 fyrir gestina í Bournemouth.
Callum Wilson skoraði fyrsta mark leiksins, en Liverpool-menn voru vægast sagt ósáttir við markið. Þeir vildu fá brot á Joe Gomez í aðdragandanum.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, og aðstoðarmaður hans, voru brjálaðir við fjórða dómarann. Markið var skoðað í VAR og eftir það var það dæmt gott og gilt.
Stephen Warnock, fyrrum bakvörður Liverpool, sagði á BBC: „Það var bakhrinding, en mér fannst Joe Gomez eiga að gera betur þrátt fyrir það."
Myndband af markinu má sjá hérna. Myndband af atvikinu þegar Liverpool vildi fá brot má sjá hér að neðan.
Micheal Oliver has blood on his hands, how is this not a foul on Joe Gomez! #LIVBOU pic.twitter.com/bBFSWTAEs6
— LFC (@RockyKlopp) March 7, 2020
Athugasemdir