Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. mars 2020 12:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Íslands: Natasha byrjar og Glódís fyrirliði
Glódís Perla er í dag fyrirliði Íslands.
Glódís Perla er í dag fyrirliði Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið liðsins fyrir leikinn gegn Skotlandi á Pinatar Cup á Spáni. Leikurinn hefst klukkan 14:00.

Leikurinn er annar leikur liðsins á Pinatar Cup, en sá fyrsti, gegn Norður Írlandi, endaði með 1-0 sigri Íslands.

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði, byrjar ekki og er Glódís Perla Viggósdóttir með fyrirliðabandið.

Frá leiknum gegn Norður-Írlandi koma Sandra Sigurðardóttir, Natasha Anasi, Guðný Árnadóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir inn í byrjunarliðið fyrir Cecilíu Rán Rúnarsdóttur, Söru Björk, Hlín Eiríksdóttur og Fanndísi Friðriksdóttur.

Hægt verður að horfa á leikinn hérna.

Byrjunarlið Íslands:
Sandra Sigurðardóttir (M)
Ingibjörg Sigurðardóttir
Natasha Anasi
Glódís Perla Viggósdóttir (F)
Guðný Árnadóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Sigríður Lára Garðardóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Rakel Hönnudóttir
Elín Metta Jensen


Athugasemdir
banner
banner