Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. mars 2020 16:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danmörk: Kjartan Henry með dramatískt sigurmark
Kjartan Henry Finnbogason.
Kjartan Henry Finnbogason.
Mynd: Getty Images
Kjartan Henry Finnbogason skoraði sigurmark Vejle er liðið vann útisigur á Hvidovre í dönsku B-deildinni á þessum ágæta laugardegi.

Staðan var markalaus í leiknum alveg fram á 94. mínútu, en þá skoraði Kjartan Henry.

Það reyndist sigurmarkið enda lítill sem enginn tími fyrir Hvidovre að svara. Vejle, sem féll úr dönsku úrvalsdeildinni í fyrra, er á toppi B-deildarinnar með sjö stiga forystu á Viborg.

Kjartan Henry hefur á tímabilinu skorað 14 mörk í 19 leikjum.
Athugasemdir
banner