Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 07. mars 2020 21:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrirliðinn, James og Lingard hvergi sjáanlegir á liðshóteli United
Mynd: Getty Images
Manchester United mætir Manchester City á Old Trafford á morgun. Hópur Manchester United hittist iðulega á Lowry hótelinu daginn fyrir leik.

Þrír leikmenn voru tæpir fyrir leikinn á morgun en Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, hafði talað um að Harry Maguire, Daniel James og Aaron Wan-Bissaka glímdu við meiðsli.

Maguire og James sáust ekki með hópnum í kvöld en Bissaka var mættur á hótelið. ManchesterEveningNews segir þó að ekki eigi að taka þessu sem staðfestu að Maguire og James verði ekki með. Í síðustu viku mætti James á hótelið fyrir leikinn gegn Everton en ferðaðist ekki til Liverpool. Á sama tíma mætti Martial ekki á hótelið en byrjaði gegn Everton.

Maguire hefur byrjað alla leiki United í deildinni og er búist við því að Eric Bailly og Victor Lindelöf spili saman ef fyrirliðinn er fjarverandi.

Marcus Rashford og Paul Pogba eru fjarverandi vegna meiðsla en við þetta má bæta að Jesse Lingard sást ekki með United-hópnum.

Leikmennirnir sem mættu á hótelið:
David de Gea, Sergio Romero, Nathan Bishop, Aaron Wan-Bissaka, Diogo Dalot, Victor Lindelof, Axel Tuanzebe, Eric Bailly, Luke Shaw, Brandon Williams, Nemanja Matic, Fred, Scott McTominay, Andreas Pereira, Juan Mata, Bruno Fernandes, Odion Ighalo, Anthony Martial og Mason Greenwood.
Athugasemdir
banner
banner