Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. mars 2020 11:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gummi Tóta sló í gegn í nýliðavígslunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er hefð fyrir því hjá mörgum fótboltafélögum að nýir leikmenn taki lagið fyrir framan nýju liðsfélagana.

Það getur reynst erfitt fyrir marga leikmenn sem eru kannski laglausir, en fyrir Guðmund Þórarinsson er það ekkert mál. Segja má að hann hafi slegið í gegn í nýliðavígslu sinni hjá New York City FC.

Gummi Tóta tók lagið So Sick með Ne-Yo við mikla hrifningu nýrra liðsfélaga.

Guðmundur er ekki bara fótboltamaður, hann er einnig tónlistarmaður. Hann hefur meðal annars tekið þátt í Söngvakeppninni á RÚV.

Að neðan má sjá þegar Gummi Tóta söng fyrir nýju liðsfélaga sína.

Sjá einnig:
Gummi Tóta: Get ekki stjórnað því hvað öðrum finnst




Athugasemdir
banner
banner