lau 07. mars 2020 18:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hallbera: Hundfúlar að tapa þessum leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum hundfúlar að tapa þessum leik. Þær eru með hörkulið en við hefðum átt að koma í veg fyrir markið þeirra. Frammistaðan var þó nokkuð góð," sagði Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins, í viðtali eftir 0-1 tap gegn Skotlandi í æfingaleik á Pinatar.

„Við vorum í eltingaleik í byrjun en þær sköpuðu sér lítið. Við náðum að stíga aðeins betur á þær í seinni hálfleik og mér fannst við vera óheppnar að skora ekki."

„Þannig séð er ég frekar fúl að tapa þessum leik,"
sagði Hallbera að lokum.

Viðtalið má sjá hér að neðan, næsti leikur liðsins er gegn Úkraínu á þriðjudag.


Athugasemdir
banner
banner
banner