Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 07. mars 2020 19:07
Aksentije Milisic
Mynd: Real Sociedad með áhugaverða leið til að verjast Messi
Mynd: Getty Images
Þessa stundina eigast við Barcelona og Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni. Þegar þetta er skrifað er staðan markalaust en leikið er á Nývangi.

Á 57. mínútu fengu heimamenn aukaspyrnu sem Lionel Messi tók að sjálfsögðu. Það sem er áhugavert við það er hvernig leikmenn Real Sociedad hafa ákveðið að verjast aukaspyrnu frá Messi.

Þeir stilla tveimur leikmönnum á marklínunni, sitt hvoru megin við markmanninn. Ekki á hverjum degi sem það sést. Þá eru þrír leikmenn í varnarveggnum sjálfum.

Mynd af þessu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner