Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 07. maí 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Ár frá ótrúlegri endurkomu Liverpool gegn Barcelona
Mynd: Getty Images
Í ár er eitt ár liðið síðan Liverpool vann ótrúlegan 4-0 sigur á Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Liverpool endaði síðan á því að vinna Tottenham 2-0 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í júní í fyrra.

Liverpool tapaði 3-0 gegn Barcelona í fyrri leiknum í undanúrslitum í fyrra og fyrir síðari leikinn á Anfield voru Mohamed Salah og Roberto Firmino fjarri góðu gamni.

Divock Origi fékk tækifæri í byrjunarliðinu og þakkaði fyrir sig með tveimur mörkum. Sigurmarkið kom eftir að Trent Alexander-Arnold var fljótur að taka hornspyrnu.


Athugasemdir
banner
banner