Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 07. maí 2020 12:30
Elvar Geir Magnússon
Laugardal
Í beinni - Fundur KSÍ um Íslandsmótið
Upplýsingafundur 13:15
Guðni Bergsson, formaður KSÍ.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net
KSÍ heldur upplýsingafund fyrir fjölmiðla í höfuðstöðvum sambandsins í dag kl. 13:15. Á fundinum verður farið yfir niðurröðun leikja í mótum sumarsins.

Guðni Bergsson formaður KSÍ, Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ og Valgeir Sigurðsson formaður mótanefndar KSÍ sitja fyrir svörum.

Greint verður frá öllu því helsta sem fram fer á fundinum og fylgst með í beinni Twitter lýsingu og stefnt á að sýna beint frá fundinum á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er stefnan sett á að opnunarleikur Pepsi Max-deildar karla, viðureign Vals og KR, verði þann 13. júní. Sjá nánar hér.

Umræða hefur verið um hvort ekki væri rétt að byrja mótið fyrr en kappleikir fullorðinna verða leyfðir hér á landi frá og með 25. maí.

13:15 Upplýsingafundur KSÍ

Posted by Fótbolti.net on Fimmtudagur, 7. maí 2020



Athugasemdir
banner