Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 07. maí 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Gerrard horfir á Klopp hlaupa daglega
Klopp er duglegur að hlaupa þessa dagana
Klopp er duglegur að hlaupa þessa dagana
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, stjóri Rangers, dvelur á heimili sínu í Liverpool þessa dagana þegar frí er í fótboltanum í Skotlandi.

Gerrard býr í sama hverfi og Jurgen Klopp, stjóri Liverpool. Klopp hefur verið duglegur úti að hlaupa á meðan frí er í fótboltanum.

„Jurgen verður í besta forminu af öllum stjórum þegar fótboltinn snýr aftur," sagði Gerrard.

„Hann hleypur framhjá húsinu mínu á sama tíma á hverjum einasta degi og síðan hleypur hann aftur til baka. Hann skokkar pottþétt í meira en klukkutíma. Ég sé hann líka úti að labba með hundinn. Við getum síðan spjallað ef við förum eftir reglum."

„Tilfinningin er sú sama hjá flestum. Við viljum byrja aftur að vinna en við skiljum stöðuna í heiminum og þörfina til að vera þolinmóðir. Að sjá Jurgen gleður mig. Það er alltaf jákvætt þegar ég hitti hann."

Athugasemdir
banner
banner