Ólafur Kristófer Helgason er unglingalandsliðsmarkvörður sem lék á síðustu leiktíð sinn fyrsta mótsleik með Fylki. Hann varði mark Fylkis gegn KA fyrir norðan.
Ólafur á að baki átján landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Ólafur á að baki átján landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Ólafur Kristófer Helgason
Gælunafn: Flestir kalla mig bara Óli en sumir segja penguin
Aldur: 17
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Mars 2019 í Lengjubikarnum á móti Njarðvík
Uppáhalds drykkur: Nocco
Uppáhalds matsölustaður: Serrano
Hvernig bíl áttu: Á ekki bíl en fæ að nota Ford Escape hjá foreldrum mínum.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Brooklyn nine nine
Uppáhalds tónlistarmaður: DaBaby og Lil Tjay eru í uppáhaldi núna
Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi Krull
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Daim, piparduft og jarðaber
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Hvað heitir bókin sem ég átti að kaupa? Frá mömmu
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ÍBV
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Elfar Árni
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Tómas Ingi
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Mikael Egill
Sætasti sigurinn: 4-1 gegn Hvíta-Rússlandi til að komast á EM-U17
Mestu vonbrigðin: 4-2 tap móti Portúgal og komast ekki á HM-U17
Uppáhalds lið í enska: United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Valgeir Valgeirsson
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Ísak Bergmann
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Aron Snær
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Elín Metta
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Stígur Annel er duglegur
Uppáhalds staður á Íslandi: Árbærinn
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Í fyrsta meistaraflokks leiknum tók ég Cruyff turn rétt fyrir framan markið en það heppnaðist sem betur fer
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Skoða Instagram og stilli svo vekjaraklukkuna
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist með landsliðinu í handbolta en annars voðalega lítið
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas Predator
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Íslensku
Vandræðalegasta augnablik: Vorum að spila við Magna í Lengjunni, við vorum nýbúnir að skora og þeir skjóta beint af miðjunni og boltinn svífur yfir mig beint í markið
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Ragnar Bragi til að halda uppi stemningunni, Daði Ólafs til að halda okkur andlega heilum og Orri Sveinn til að byggja húsið okkar
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég nota skóstærð 47
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Ólafur Ingi, hann drullar yfir mann ef þess þarf en hann hjálpaði mér að komast inn í hópinn og hefur kennt mér helling
Hverju laugstu síðast: Lýg aldrei
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Sprettir
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: Ég vakna, klára allt sem ég þarf að gera fyrir skólann, tek æfingu sem ég fæ frá þjálfurunum og svo er restin af deginum mjög rólegur, enda oftast að spila CS
Athugasemdir