Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 07. maí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vienna Behnke spilar með Haukum í sumar
Vienna í leik með Haukum.
Vienna í leik með Haukum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vienna Behnke hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka og mun hún spila með meistaraflokki kvenna í 1. deildinni í sumar.

Vienna, sem er 27 ára, lék 12 leiki með Haukum síðasta sumar og skoraði hún níu mörk en hún spilaði einnig með Haukum í Pepsi-deildinni sumarið 2017. Þá spilaði hún fyrir Chicago Red Stars Reserve árið 2016 í Women’s Premier Soccer League.

Þess má geta að Vienna er með mastergráðu í sálfræði.

„Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar samningnum við Viennu enda mun hún styrkja hópinn fyrir komandi tímabil. Þá er hún frábæra persóna og mikilvægur hluti af Hauka fjölskyldunni," segir í tilkynningu Hauka.

Sjá einnig:
Skoraði þrennu á rúmum sex mínútum - „Smá heppni í fyrsta markinu"

Athugasemdir
banner
banner