Liverpool og Tottenham eigast við á Anfield í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 18:45 en byrjunarliðin eru klár fyrir leikinn.
Ibrahima Konate er áfram í vörn Liverpool með Virgil van Dijk og þá er Jordan Henderson á miðjunni með þeim Thiago og Fabinho.
Luis Díaz, Sadio Mané og Mohamed Salah leiða sóknarlínu heimamanna.
Dejan Kulusevski kemur inn í lið Tottenham fyrir Lucas Moura og er það eina breytingin sem Antonio Conte gerir á liðinu.
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Konate, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Henderson, Thiago, Salah, Mane, Diaz
Tottenham: Lloris, Royal, Romero, Dier, Davies, Sessegnon, Bentancur, Hojbjerg, Kulusevski, Son, Kane
Athugasemdir