Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. júní 2022 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Þjóðverja og Englendinga: Pickford og Sterling fá fimmur
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir 1-1 jafntefli Þýskalands og Englands í Þjóðadeildinni í kvöld.


Þjóðverjar voru betri í fyrri hálfleik og tóku forystuna í upphafi síðari hálfleiks á meðan Englendingar áttu góðan lokakafla - sérstaklega eftir innkomu Jude Bellingham, Jack Grealish og Jarrod Bowen af bekknum.

Jordan Pickford og Raheem Sterling eru þeir einu sem fá falleinkunn, undir 6, í liði Englendinga. Pickford átti nokkrar góðar vörslur í leiknum en átti sök á eina marki Þjóðverja. Sterling var hljóðlátur og fá þeir báðir 5 í einkunn.

Táningurinn Jude Bellingham kom inn af bekknum og endaði á að fá hæstu einkunn allra í liði Englands. Hann fær 8 fyrir sinn þátt en markaskorarinn Harry Kane fær 7.

Tveir leikmenn úr þýska liðinu fá 8 í einkunn. Þeir eru Joshua Kimmich, sem átti glæsilega stoðsendingu, og Jamal Musiala.

Þýskaland: Neuer (7), Schlotterbeck (5), Rudiger (7), Klostermann (7), Hofmann (7), Gundogan (6), Kimmich (8), Raum (7), Muller (7), Musiala (8), Havertz (7).
Varamenn: Sane (6), Werner (6), Gnabry (6), Goretzka (6).

England: Pickford (5), Walker (6), Maguire (6), Stones (6), Trippier (6), Phillips (6), Rice (7), Saka (6), Mount (6), Sterling (5), Kane (7).
Varamenn: Bellingham (8), Grealish (7), Bowen (7).


Athugasemdir
banner
banner