Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 07. júlí 2018 09:00
Gunnar Logi Gylfason
Courtois: Ég myndi aldrei gera grín að stærð annars markmanns
Courtois
Courtois
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður belgíska landsliðsins, átti mjög góðan leik í gær gegn Brasilíu þegar Belgar slógu Brassana út.

Þegar að Belginn var að klára viðtal eftir leikinn við BBC bað hann um að fá að bæta einu við.

Þannig er mál með vexti að talið var að Courtois hefði verið að setja út á stærð Jordan Pickford í marki Englands eftir að hann náði ekki að verja sigurmark Adnan Januzaj í leik Belgíu og Englands.

„Þetta mál með Jordan... mig langar að koma því fram, þar sem ég hef heyrt margt, að ég gerði aldrei grín að hæð hans. Ég myndi aldrei gera grín að stærð markmanns - mér finnst hann frábær markvörður, hann sannaði á síðasta tímabili."

„Ég sagði bara þar sem hann náði snertingu hefði ég kannski varið þetta þar sem ég er 15 sentímetrum stærri en hann. Ég gerði aldrei grín að hæðinni hans því ég veit að hann er frábær markvörður. Ég vil koma því á framfæri!"

Athugasemdir
banner
banner