Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 07. júlí 2018 22:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Mane gerir lítið úr orðrómum um Real Madrid
Mane í leik með Liverpool
Mane í leik með Liverpool
Mynd: Getty Images
Sadio Mane hefur gert lítið úr orðrómum þess efnis að Real Madrid sé að undirbúa tilboð í leikmanninn sem yrði hugsaður sem staðgengill Cristiano Ronaldo.

Ronaldo nálgast samning við Juventus og Madrid er byrjað að leita að eftirmanni, Mane er einn af þeim sem hefur verið nefndur til sögunnar í því samhengi. Mane hefur gert lítið úr málinu og segir aðeins um orðróma vera að ræða.

Þetta eru bara orðrómar. Ég veit ekki um neitt og enginn hefur haft samband við mig,” sagði Mane.

Ég verð áfram Liverpool leikmaður og mun hitta liðsfélaga mína í Bandaríkjunum fyrir undirbúningstímabilið. Real er frábært lið en ég er einbeittur á mitt lið, Liverpool.”
Athugasemdir
banner
banner
banner