„Erfiður leikur og við kláruðum þetta vel. Bara vinnusigur.“ Þetta sagði Rúnar Páll eftir 2-0 sigur Stjörnunar á botnliði Keflavíkur, en með sigrinum er Stjarnan komin í efsta sæti deildarinnar.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 2 Stjarnan
„Hann var ekkert meiddur. Við ákvaðum að gera þetta svona víst Guðmundur og Eyjólfur eru nýkomnir úr meiðslum, fínt að dreifa mínútunum,“ sagði hann um að hann um skiptingu Guðmunds og Eyjólfs sem kom á sextugustu mínútu.
„Við erum ekki byrjaðir að leikgreina þá, förum í það strax í dag og á morgun. Við erum búnir að vera að einbeita okkur að deild og bikar. Nú er komin tímapunktur til að fara að skoða mótherja okkar. Ég býst við hörkuliði,.“ sagði hann um væntanlega Evrópu leiki Stjörnunar gegn Nõmme Kalju FC frá Eistlandi. og bætti við: „ Við þurfum að eiga okkar besta leik til að vinna þá.“
Athugasemdir