Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. 3 - 1 Álftanes
1-0 Karyn Forbes ('5 )
2-0 Jóhanna Lind Stefánsdóttir ('45, víti )
3-0 Julie Gavorski ('62 )
3-1 Sigrún Auður Sigurðardóttir ('78 )
1-0 Karyn Forbes ('5 )
2-0 Jóhanna Lind Stefánsdóttir ('45, víti )
3-0 Julie Gavorski ('62 )
3-1 Sigrún Auður Sigurðardóttir ('78 )
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. vann Álftanes 3-1 í 2. deild kvenna í dag en leikurinn fór fram í Fjarðabyggðarhöllinni.
Karyn Forbes kom heimaliðinu yfir á 5. mínútu áður en Jóhanna Lind Stefánsdóttir bætti við öðru marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.
Julie Gavorski gerði svo þriðja markið á 62. mínútu. Sigrún Auður Sigurðardóttir klóraði í bakkann fyrir Álftanes á 78. mínútu og þar við sat.
Lokatölur 3-1 fyrir FHL, Liðið er með 12 stig í 3. sæti eftir 7 leiki á meðan Álftanes er í 4. sæti með 9 stig. Álftanes á þó leik inni.
Athugasemdir