Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 07. júlí 2019 15:38
Brynjar Ingi Erluson
Aston Villa að kaupa Mings á 20 milljónir punda
Tyron Mings er að ganga í raðir Aston Villa
Tyron Mings er að ganga í raðir Aston Villa
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur komist að samkomulagi við Bournemouth um kaup á Tyrone Mings. Þetta herma heimildir Sky Sports.

Mings var á láni frá Bournemouth hjá Villa á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að komast aftur upp í deild þeirra bestu.

Hann er uppalinn hjá Southampton en hafði spilað með Bournemouth frá árinu 2015. Tækifærin þar voru af skornum skammti og ákvað því Villa að fá hann lánaðan á síðasta tímabili.

Hann stóð sig gríðarlega vel þar og er Villa nú að tryggja sér þjónustu hans en félagið greiðir Bournemouth 20 milljónir punda.

Hann mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum og verður væntanlega kynntur á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner