Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. júlí 2019 15:55
Brynjar Ingi Erluson
Griezmann kynntur hjá Barcelona á miðvikudag
Það er mikið drama í kringum félagaskipti Antoine Griezmann
Það er mikið drama í kringum félagaskipti Antoine Griezmann
Mynd: Getty Images
Spænska stórliðið Barcelona mun kynna Antoine Griezmann á miðvikudag. Þetta fullyrðir spænska blaðið AS.

Saga Griezmann hefur vægast sagt verið sorgleg en allt þetta byrjaði á heimildamynd á síðasta ári sem hann gaf út er hann var að taka ákvörðun um framtíð sína.

Griezmann ákvað þá að hafna Barcelona og framlengja við Atlético en ekki féll það vel í kramið hjá Börsungum. Ári síðar virðist hann vera á leið þangað.

Atlético hefur sakað Barcelona um að hafa rætt við leikmanninn frá því í mars þegar Madrídarliðið var í harðri baráttu í bæði deild og Meistaradeild. Yfirlýsing Atlético um framferði Griezmann og Barcelona sýndu óánægju félagsins en það virðist allt vera á enda núna.

Madrídarliðið keypti Joao Felix frá Benfica á 113 milljónir evra og gaf honum treyjunúmerið 7 en það hefur verið númerið hans Griezmann síðustu ár.

AS segir í dag að Barcelona gangi frá kaupunum á næstu sólarhringum og að Griezmann verði kynntur hjá félaginu á Nou Camp á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner