Guðmundur Þórarinsson og hans menn í Norrköping unnu góðan 2-1 sigur á Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Guðmundur er lykilmaður í liði Norrköping og hefur vakið áhuga hjá mörgum félögum í Evrópu síðustu vikur eins og greint var frá hér á Fótbolta.net á dögunum.
Hann spilaði allan leikinn í 2-1 sigri gegn Häcken í dag en liðið er með sigrinum í 6. sæti deildarinnar með 24 stig, jafnmörg og Häcken sem er í sætinu fyrir ofan.
Óskar Sverrisson var á bekknum hjá Häcken en hann samdi við félagið fyrir mót frá Mjällby.
Úrslit og markaskorarar:
Norrköping 2 - 1 Häcken
1-0 Jordan Larsson ('11 )
1-1 Gustav Berggren ('71 )
2-1 Christoffer Nyman ('79 )
Athugasemdir